STRUX
Skilmálar
Uppfært: 20. ágúst 2026
Stutt útgáfa: strux.is er kynningarvefur Strux ehf. Hér er það sem skiptir máli.
1. Sýnidæmin eru tilbúin gögn
Skjámyndir og dæmi á vefnum byggja á tilbúnum sýnigögnum og eru merkt Sýnidæmi. Þau sýna hvernig kerfið vinnur en eru ekki niðurstöður úr raunverulegum verkefnum.
2. STRUX er stuðningstól, ekki opinbert samþykki
Niðurstöður STRUX eru til stuðnings við hönnuði og umsækjendur. Þær koma ekki í stað faglegrar yfirferðar og eru ekki samþykki stjórnvalda. Yfirferð sveitarfélags gildir ávallt umfram niðurstöður kerfisins, og notendur bera sjálfir ábyrgð á eigin gögnum og skilum.
3. Umsókn um pilot
Umsókn í gegnum vefinn er beiðni um samtal og felur ekki í sér samning eða skuldbindingu af hálfu Strux ehf. eða umsækjanda. Um pilot-samstarf, þar með talið verð, umfang, ábyrgð og meðferð verkefnagagna, gildir sérstakur skriflegur samningur. Um persónuupplýsingar við umsókn gildir persónuverndarstefna okkar.
4. Annað
Efni vefsins er eign Strux ehf. og veitt án ábyrgðar að því marki sem lög leyfa. Um skilmálana gilda íslensk lög. Spurningar má senda á hallo@strux.is.