STRUX
Persónuverndarstefna
Uppfært: 20. ágúst 2026
Stutt útgáfa: við söfnum því sem þú skrifar í umsóknarformið og, með þínu samþykki, nafnlausum umferðartölum. Við seljum aldrei persónuupplýsingar.
1. Ábyrgðaraðili
Strux ehf., kt. 690526-0500, Reykjavík — hallo@strux.is. Við vinnum persónuupplýsingar í samræmi við lög nr. 90/2018 og persónuverndarreglugerð ESB (2016/679).
2. Hvað við söfnum og hvers vegna
- Umsókn um pilot: nafn, fyrirtæki, netfang og starfsheiti sem þú gefur upp. Notað til að hafa samband, meta hvort STRUX henti verkefnum þínum og ræða mögulegt pilot-samstarf. Grundvöllur: samþykki þitt og ráðstafanir að þinni beiðni fyrir samningsgerð.
- Vefgreining: Google Analytics mælir umferð (IP-tala, tæki, skoðaðar síður) — aðeins eftir að þú samþykkir í samþykkisborðanum. Nauðsynleg virkni vefsins notar engar slíkar kökur. Samþykki má afturkalla með því að hreinsa vefkökur í vafranum.
3. Vinnsluaðilar
Netlify (hýsing og móttaka forma) og Google (greining, með samþykki) vinna gögn fyrir okkar hönd. Báðir eru í Bandaríkjunum; við flutning utan EES er stuðst við viðeigandi varúðarráðstafanir samkvæmt persónuverndarlöggjöf.
4. Varðveisla
Umsóknarupplýsingar geymum við á meðan umsókn er til skoðunar og samskipti standa yfir, að hámarki 24 mánuði nema áframhaldandi samskipti réttlæti lengri tíma, eða þar til þú óskar eftir eyðingu. Verði af pilot-samstarfi gildir pilot-samningurinn um gögn í því samstarfi.
5. Réttindi þín
Þú átt rétt á aðgangi, leiðréttingu, eyðingu, takmörkun og flutningi gagna, rétt til að andmæla vinnslu og til að afturkalla samþykki. Sendu beiðni á hallo@strux.is. Kvörtun má beina til Persónuverndar (personuvernd.is).
6. Breytingar
Uppfærð útgáfa er ávallt birt hér með dagsetningu efst.