Fáðu byggingarleyfið í fyrstu tilraun

STRUX ber skjöl og teikningar saman við byggingarreglugerð. Kerfið finnur villur í teikningum og gögnum áður en umsókn er send inn.

Hvernig virkar STRUX

Við grípum villurnar áður en þær kosta þig

Sýnidæmi með tilbúnum gögnum á einu verkefni. STRUX les inn líkan, teikningar og fylgigögn og ber þau saman við byggingarreglugerð 112/2012.

01

Samræmingarvillur milli skjala

STRUX ber saman gildi milli aðaluppdrátta, séruppdrátta og skráningar og merkir þar sem þeim ber ekki saman.

Fjölbýlishús · Demo-reitur 4 Sýnidæmi
Ósamræmi milli skjala Til skoðunar

Brunahólf BH-02 · flatarmál

Aðaluppdráttur 240,0 m²
Skráningartafla 218,4 m²

Mismunur 21,6 m² · borið saman við byggingarreglugerð 112/2012.

02

Fylgiskjöl sem vantar

Kerfið ber innsend gögn saman við þau fylgigögn sem byggingarreglugerð gerir kröfu um og lætur þig vita hvað vantar.

Fjölbýlishús · Demo-reitur 4 Sýnidæmi
Fylgigögn umsóknar 11 / 12
Aðaluppdrættir
Afstöðumynd
Skráningartafla
Brunahönnun (greinargerð) Vantar
Lóðauppdráttur
03

Staðan fyrir innsendingu

Þú sérð á einum stað hvað er tilbúið og hvað stendur út af áður en umsóknin fer til sveitarfélagsins.

Fjölbýlishús · Demo-reitur 4 Sýnidæmi
Staða fyrir innsendingu
92% tilbúið
Samræmi skjala 1 ábending
Fylgigögn 1 vantar
Reglufylgni Í lagi

Staðan í dag

Þar sem STRUX stendur núna

STRUX er í prufukeyrslu með fagfólki úr greininni á raunverulegum verkefnum og við þróum kerfið áfram með þeim.

Topp 10 í Gullegginu

Valið í topp 10 hugmyndir og kynnt í Grósku.

Styrkt af Rannís

Hlaut Fræ-styrk til að þróa kerfið.

Í Startup Supernova

Tökum þátt í hraðlinum og þróum kerfið áfram.

Teymi STRUX kynnir lausn sína fyrir yfirferð byggingarleyfisumsókna á lokakeppni Gulleggsins í Grósku
STRUX kynnt í Grósku á lokakeppni Gulleggsins.

Teymið

Teymið á bak við STRUX

Hannes Helgi, meðstofnandi STRUX

Hannes Helgi

Vöruþróun og hugbúnaðarþróun

Dagur Ingi, meðstofnandi STRUX

Dagur Ingi

Viðskiptaþróun

Pilot

Prófaðu STRUX á þínum verkefnum

Við erum að taka inn fyrstu pilot-verkefnin. Skráðu þig og við höfum samband til að finna út hvort STRUX passi þínum verkefnum.

  • Við tökum inn fyrstu pilot-verkefnin núna
  • Þú prófar á þínum eigin verkefnum
  • Þú mótar kerfið með okkur

Við höfum samband innan nokkurra daga og förum yfir verkefnin þín með þér.